Round is a shape..! ;oD
05.12.2006 10:27:14 / bjarneybj

hallókalló

bara að kasta kveðju á þessa síðu á meðan ég er sveitt í prófum8| er annars með aðalbloggið mitt á bjarneybj.blogspot.com 

later folks:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 23:42:12 / bjarneybj

Hlauptu hlunkur is back!! ;o)

http://www.bjarneybj.blogspot.com

Kíkið á mig hérna, er að spá í að færa mig aftur yfir, er búin að gefast uppá þessu blog.central rusli, búin að reyna að fá inn gömlu færslurnar mínar, búin að borga þrisvar fyrir sama aukahlutinn en hann kemur aldrei inn. Langar að eiga gamlar færslur (veit það er hægt með einhverri "svindl" aðferð, bara nenni ekki að standa í því! Sem sagt, setjið Hlaupandi hlunkinn inn í favorites..! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 18:05:06 / bjarneybj

14/01

Ég var með 5.flokkinn minn að spila æfingaleiki í gær (eldra árið) og í morgun (yngra árið) Við eigum alltaf æfingar kl.9 á laugardagsmorgnum og þjálfari hins liðsins sagði mér að stelpurnar sínar hefðu ekki verið mjög sáttar við að mæta svona snemma en þær þögnuðu þegar hann sagði við þær að þær þyrftu bara að gera þetta einu sinni, en þetta væri fastur æfingatími hjá Valsstelpunum. Svo sagði hann mér að vinur sinn, sem væri að þjálfa unglingaflokk karla hjá Val hefði einmitt verið að tala um (á aðdáunarverðann hátt) að það væri sama hvenær hann setti á æfingar, alltaf væri 100% mæting.
Ég sagði honum þá að þetta væri útaf Vals "uppeldinu". Þeir sem eru af Vals-kynslóðum sem koma á eftir '73 gullárgangnum hafa nebbla alist upp við dæmisögur af Degi Sigurðs, Óla Stefáns (sem kom stundum hlaupandi á æfingar með sandpoka á löppunum!), Óskari Bjarna, og fleirum. T.d eru allar kvartanir yfir leiðindaæfingatímum kæfðar í fæðingu með sögunni um að þeir hefðu alltaf tekið strætó á æfingar, og m.a kl.8 á laugardagsmorgnum! Og hann (þjálfarinn) átti varla til orð þegar ég sagði honum að eldra árið mitt ætlaði að koma kl.9:30 til að fara í úthlaup! Ég sagði þeim bara að vera vel klæddar og það heyrðist ekki einasta píp. Þær mættu svo ferskar kl.9:30 og fóru út að skokka eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég sagði líka við stelpurnar mínar í morgun að þetta væri sennilega sjálfsagaðasti 5.flokkur landsins! 8|
Humm, þetta var nú kannski ekkert sérlega skemmtileg saga:$ En ég er bara svo ótrúlega stolt af þessum gerpum að mig langaði að deila þessu með ykkur, ótrúlegir naglar..! ;)

En ég skal þá bara koma með aðra sögu:lol: Fór í skvass í gærkvöldi með einum karlkyns kúnnanum mínum, sem væri nú ekki í frásögur færandi nema af því að hann tilkynnti mér í ca.3.lotu að hann tæki of mikið tillit til mín, þ.e hann hikaði stundum við að slá því hann væri svo hræddur við að slá í mig. Ég bara:"Hva, vert'iggi að spá í það, sláðu bara í mig ef ég er fyrir!" (alltaf sami naglinn! haha;)) ca.3mínútum síðar fékkég svo spaðann af fullu afli í fésið:^) en sem betur fer fór hann í vörina og nefið, þannig að ef einhver skaði hefði hlotist af þá hefði því verið reddað í aðgerðinni n.k miðvikudag:lol: En gott ef ég vann ekki þá lotu:$ Virkaði greinilega vel að fá smá slap in the face..!

Nenniggi meir, er hálf slöpp, týpískt fyrst það er fríhelgi hjá mér:S ætla samt að ná því úr svo ég komist á snjóbretti á morgun8) (Eva ertu ekki ennþá game? Magni kemur sennilega líka (og að fara í fyrsta skipti, þetta verður eitthvað algjört bíó! Allavegna líf og fjör, tek myndavélina með!hehe)

bæbbli... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 09:01:13 / bjarneybj

nýi bíllinn minn, Toyota Snowball...

Sjæt, ég fór svo öfugu megin framúr í morgun að ég held ég hafi farið framúr til fóta! :$ Og svo var litli krúttlegi Yarisinn minn eins og risafeitur snjóbolti þegar ég kom út og ég var með hnút í maganum alla leiðina í vinnuna um að ég myndi festast einhvers staðar, það var ekkert smá djúpur snjórinn (og ekki mikið búið að skafa göturnar kl.5:50). En ég komst á leiðarenda, en var sko ekki vöknuð:S 6-kúnninn minn hefur sennilega haldið að greindarvísitalan mín hafi droppað um nokkur hundruð stig yfir nóttina8| Og ekki eins og ég hafi mátt við því:S

Svo æfði ég og Eva as usual kl.7, og vorum að gera tricep æfingu, Jói þjálfari kom og ætlaði að vera voða fyndinn og hella vatni á mig (hann stóð fyrir aftan mig þannig að ég sá hann ekki) Eva var ekki lengi að stoppa hann af, í dag væri ekki rétti tíminn til að vera "fyndinn"! Ég hefði samt ekki einu sinni nennt að lemja hann sko, hefði bara lagt bölvun á hann og hann hefði vaknað með frunsu á bakinu á morgun! :klikk: Orri, ef þig langar að sjá mig sem grumpmonster, than now is your chance!! Er samt ekki að fíla að það virðist enginn vera að taka vonda skapið mitt alvarlega..!  :$

Fór á fund í gærkvöldi, það var verið að ræða keppnisferðina á Partille cup í sumar. Ég fékk svona fiðrildi í magann þegar byrjað var að tala um Liseberg-ferðina (tívolíið í Gautaborg)  og svo byrjaði ein:"Bjarney ef það er fallturn þá förum við sko í hann!" (soldið að reyna að ögra mér, sama trix og HK pjakkarnir notuðu þegar ég fór með þeim út, það endaði samt þannig að þeir voru ekkert alveg jafn miklir töffarar þegar á hólminn var komið, býst við svipaðri útkomu núna;)) Svo reyndar þagnaði hún þegar ég sagði henni að ég hefði farið bæði í teygjustökk og fallhlífastökk, slæ aldrei hendinni á móti smá adrenalíni..! :haha:

Nenniggi meir, damn hvað ég er lélegt grumpmonster, held það sé enginn hérna í vinnunni að fatta að ég sé í vondu skapi! Wake up people and smell the coffee! 
Jæja, ætla þá bara að drullast í gott skap, samt ekki oft sem ég fer í mörg sköp á sama deginum (jafnaðargeðið, you know! Ég er VÍST með jafnaðargeð! Er alltaf í vondu skapi! hahaha) Ég þekki samt fullt strákum sem skipta um sköp reglulega:$ (taka bara til sín sem eiga) en þá erum við kannski farin aðeins út fyrir efnið! :lol:

bæbbli... 


» 12 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 15:28:59 / bjarneybj

too much info?? ;o)

Það er tvennt í lífinu sem ég vanræki aldrei, og það er krabbameinsskoðun og tannlæknaheimsóknir. Ég er meira að segja svo samviskusöm að ég fór til kvensjúkdómalæknisins míns í byrjun desember s.l og tilkynnti honum að ég teldi að það væri kominn tími á krabbameinsskoðun, hann fletti upp í skránni og svo bara: "Nei Bjarney mín, við tókum sýni í mars!" (maður á sem sagt að fara á 2 ára fresti fyrir þá sem vita það ekki! :S) en jæja, better safe than sorry! :lol:
En já, ég ætlaði samt ekkert að segja frá því, ég var að koma frá tannsa núna og ég náði ansi merkum áfanga í mínu lífi, samt ekki mjög jákvæðum sko, var að fá fyrstu skemmdina mína:S En hann sagði að hún væri bara oggulítil og við ákvaðum að gera bara við hana án deyfingar. Svo reyndar játaði hann fyrir mér eftir á að skemmdin hefði verið soldið stærri en hann hélt:$ Ætla nú ekki að ljúga, þetta var ekkert þægilegt, en ég er mjög fegin að vera laus við að vera dofin í hálfu andlitinu næstu klukkutímana! Hann er algjör töffari sko, við erum alveg á sömu bylgjulengdinni, skrapp t.d einu sinni úr vinnunni í skoðun og þá kom í ljós að það væri kominn tími á að taka endajaxlana úr efri, og hann gerði það bara med de samme, svo fór ég bara aftur í vinnuna. Ágætt að hafa einhvern sem skilur að ég nenni ekki að bíða eftir hlutunum..! :haha:

Annars ekkert rosa mikið að frétta, er reyndar pínu lost, er í fríi nánast alla helgina! Er að vinna 9-15 á lau og svo bara ekkert meir8| Ég og pabbi erum að spá í að skella okkur kannski á skíði á sunnudag ef færið verður sæmilegt, og svo eru 3 bækur sem ég á eftir að klára, þannig að þetta verður hin bestasta helgi. Vona innilega að við förum á skíði, hef ekki farið í 10-11 ár, ekki síðan ég sleit krossbandið í fyrra skiptið:S Fyrst núna sem ég er einfaldlega farin að þora að prófa aftur, enda búin að vera rosa dugleg að styrkja hnéin, vona bara að þau haldi..! :$

Gotta go, vinnan bíður, bæbbli...


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 08:55:21 / bjarneybj

bleh

Ég vona svo innilega að fólk hætti núna endanlega að kaupa helv... sorpblaðið, DV! Hvað er satt í þessu máli er algjört aukaatriði, þeir voru búnir að ganga frá mannorði mannsins áður en rannsókn var nánast hafin:evil: Þetta er bara djö... pakk og ég trúi ekki að þeir muni halda áfram með þessi níðskrif sem hafa allavegna kostað eitt mannslíf, Guð má vita hvort þeir hafi fleiri á samviskunni sem hafa bara ekki verið gerð opinber, og þeir hafa líka framið ansi mörg mannorðsmorð! Mín skoðun er sú að þeir sem kaupa þetta rusl eru jafn ábyrgir fyrir afleiðingunum og þeir sem skrifa þennann óbjóð...
http://www.deiglan.com/askorun/
 opið til kl.14 í dag, til að mótmæla stefnu DV.
Hvet sem flesta til að skrifa undir

En að öðru, ég hef ákveðið að skrifa opið bréf til Evu minnar:
"Elsku Eva, fyrirgefðu að ég rak þig úr þjálfun! Mér var bara svo illt í lífbeininu eftir skrýtnu mjóbaksæfinguna sem ég fann upp, að ég hugsaði ekki skýrt:S Og að reka þig á miðri bakæfingu er nottla algjört tillitsleysi, hefði verið mun skárra ef við hefðum t.d verið að lyfta fætur. Ég vona að þú fyrirgefir mér að hafa látið gönurnar ná yfirhöndinni (má ekki alveg segja það? svona as in, að láta skapið hlaupa með sig í gönur:$ ) anyways, ég vona að þú afsakir hegðun mína og mætir fersk með mér á fótaaæfingu í fyrramálið!
Ég gluggaði líka aðeins í vinnustaðalöggjöfina og uppsagnarfresturinn sem þú þyrftir að vinna upp er ekki nema vika, sem mér finnst bara alltof stutt, þannig að ég dreg uppsögnina til baka og vona að ég fái að njóta samvista við þig til allavegna 20.maí, þín uppáhalds Bjarney"

Dísús, hvað er samt málið með að skjóta upp flugeldum  og spila rapp á hæsta volume fyrir kl.9 á miðvikudagsmorgni?? (welcome to the ghetto!) Og eitt sem ég mun aldrei skilja, til hvers í ósköpunum voru ílur eiginlega fundnar upp? :$ Sé engann tilgang með þeim, nema bara að vera annoying..! 8|

Nenniggi meir, bæbbli....


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 22:08:44 / bjarneybj

safasafi

Djöss snilld er nýja safapressan mín! :haha: Var að vígja hana áðan og bjó ábyggilega til hollasta safa í heimi!! Improviseraði bara og tíndi til ýmislegt úr ískápnum, og afraksturinn var fagurgrænn safi sem enginn vildi smakka:S Nema nottla ég, hélt bara fyrir nefið og staupaði:lol: En safinn innihélt baby brokkolíhaus, heila gúrku, hálfa græna papriku, pínu blómkál og oggupons sellerí (vá hvað það er samt mikið bragð af því) ég skal alveg viðurkenna að bragðið var ekkert það besta í heimi, en tilgangurinn helgar meðalið;) Ætla samt að nota nýju safauppskriftabókina mína "Endalaus orka" til að búa til morgunsafann minn. Er búin að finna mína hillu í eldhúsinu, bjó til þennan dýrindis safa og svo skellti ég í "morgun herbalife sjeikana" fyrir mig og múttu (myndum sennilega ekki vinna vinsældakeppni ef mixerinn færi á fullt kl.5:15!) Sem sagt, mín eldamennska snýst um að vera einfalt, taka stuttann tíma og er ofurhollt;)

En ég er bara hálfklökk eftir að lesa allt þetta fallega sem þið yndislega fólk skrifuðuð um mig8| Veit þið mynduð sennilega ekkert fara að draga gallana mína fram svona á opinberum vettvangi, en í sannleika sagt bjóst ég alls ekki við að svona margir myndu skrifa. Enn og aftur finn ég hvað ég er umkringd frábærasta fólki jarðkringlunnar, takk fyrir að vera til guys, þið eruð alveg bestust *smooch* ;)

En ef fleiri vilja skrifa þá endilega ekkert hætta, er forvitnasta manneskja í heimi, gæfi mikið fyrir að vita hverjir lesa þetta blessaða blogg mitt:$ En ef þið nennið ekki að svara spurningunum þá væri samt gaman að fá kvitt frá ykkur;)

Farin að mixa mangósafann fyrir morgundaginn, nú fer þetta bara að verða tímaspursmál hvenær ég fæ svona minn eigin "Gillian" þátt! Humm, en ef maður er það sem maður borðar þá er ég sennilega ennþá Macintosh moli eftir jólin8| Svona flöt karamella, þarf kannski að verða kálhaus áður en mér verður hleypt í tellíið:$ En það hlýtur nú að koma, og í nánustu framtíð verður það Gillian sem vitnar í mig: "you know, my friend Bjarney, from Iceland, she´s the best cabbage head in aaaaall Iceland and all the people in Iceland very afraid of her because she will send you to this ass cleaning machine, that is much bigger than the ass cleaner I use!! So if you wont be good and do what I tell you to do, I will send you to the "brokkoli-bitch" in Iceland!"

Humm, svefngalsi?? guess so:$ farin...


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 22:24:50 / bjarneybj

worth giving a shot...

Nýjasta æðið í bloggheiminum, maður verður víst að fylgja straumnum, getur ekkert farið að taka upp á því að hafa sjálfstæðann vilja eða eitthvað! 8| En mér þætti samt vænt um það ef þið mynduð svara, megið líka gera það nafnlaust ef þið viljið ekki láta bendla ykkur við að lesa bloggið mitt! fyndið að sjá hvað fólk hugsar um mann;)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Líst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkirðu mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 20:11:06 / bjarneybj

komin aftur:oD

Var ég búin að segja ykkur að ég elska sunnudaga?! :haha: Ég er sko með kenningu um þá sem hata sunnudaga, annaðhvort eru þeir þunnir, sem er alveg tilefni til að hata hvaða dag sem er, eða að þeir kunna ekki að lifa í núinu, eru strax byrjaðir að nenna ekki í vinnuna á morgun o.s.frv. Ég skal alveg viðurkenna það að ég tek ekki heljarstökk af spenningi yfir að vera að vinna á morgun streit frá kl.6:00-20:30 með einni pásu frá 13-14, en það er bara e-ð sem ég díla við á morgun, og sjaldnast eru dagarnir jafn yfirþyrmandi og þeir virðast vera.
En já, kenning smenning, ég er búin að gera fullt í dag, t.d taka til í herberginu mínu, núna geta ég labbað í beinni línu frá hurðinni að rúminu:haha: fór svo og skokkaði og hjólaði  í klukkutíma, og svo í smáralind að kaupa að kaupa fæðingargjöf og ávexti til að setja í nýju safapressuna mína (sem ég keypti fyrir gróðann af útsöluferðinni miklu;)) og þaðan fór ég að heimsækja eilífðarkúnnann minn sem var að eignast tvíbura fyrir 10 dögum, vá hvað þeir eru sætir! Jafn ólíkir og hægt er (vil samt taka það fram að eggjastokkarnir tóku ekki kipp, none what so ever! Ok, kannski pínu:$ jæja, reyndar fullt:S
Það er samt engin smá vinna að vera með svona 2 stk! fjúff, en ég fékk að máta báða og þeim fannst ég ótrúlega skemmtileg:haha: keypti nebbla svona bangsa handa þeim, þar sem maður setur hendina uppí rassinn á bangsanum og gerir svona allskyns skemmtileg move, og getur jafnvel sagt brandara í leiðinni ef sá gállinn er á manni (fékk líka prik fyrir frumlegheit í fyrirrúmi, ég hafði ekki hugmynd um hvað maður kaupir fyrir svona krakka á þessum aldri sem eiga yfirleitt allt, gat valið um rassabangsa eða samfellur!) en þeir horfðu samt dolfallnir á apa- og gíraffabangsann, gott ef maður er ekki strax orðinn uppáhalds, á 10. degi..! ;)

Fór svo í hálftíma skvass með Önnu Rut, ætluðum að vera í klukkutíma en hún er búin að vera fárveik yfir helgina og ég var soldið búin að vera að trassa að borða almennilega í dag þannig að við slaufuðum þessu bara eftir 30 mín., og ég hætti í nammibindindinu og fór og keypti mér bland í poka:haha: byrja nottla aftur í bindindi á morgun EN bara fram að næstu helgi, finnst ekkert gaman að vera í svona bindindi smindindi:S (Sorry Eva, you're on your own...)

En svona að lokum, hvað er með þessi fjúkandi jólatré út um allt?? Akkuru fær fólk sér ekki bara gervitré fyrst það nennir ekki að ganga frá þessu eftir notkun? :$ Eðlilegt að að vera að keyra og skyndilega ræðst á mann eitt stykki grenitré! Stórhættulegt helvíti..!

Oh well, ætla að fara og hangsa pínu á einhverjum bloggsíðum áður en ég reyni við svefninn, góða nótt... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 22:03:55 / bjarneybj

bloggtími...

Humm, ekki oft sem líður svona langt á milli blogga hjá mér! :$ En það er komin vertíð hjá okkur einkaþjálfurum, allir að koma sér í gang eftir jólin. Þvílík örtröð inná líkamsræktarstöðvum, þetta verður orðið þægilegt aftur ca. í febrúar þá verður slatti búinn að heltast úr lestinni, það var rannsókn sem sýndi að meðaltal þess hvað fólk endist lengi í svona "átökum" eru 2 vikur! Vona að sem sem flestir afsanni samt þessa niðurstöðu, slaki aðeins á og leyfi hlutunum að hafa sinn tíma, Róm var ekki byggð á einum degi og hún brann ekki heldur á einum degi! ;)

Fór á jólaball í dag með sambýlismönnunum mínum, það var æði. Þarna voru samankomir núverandi og fyrrverandi heimilismenn Kópavogshælis og allir í svaka stuði. Ég held það geti enginn, nema þeir sem hafa unnið með fötluðum eða umgengist að ráði, ímyndað sér hvernig tilfinning það er að fylgjast með þeim algjörlega taktlausum að dansa og syngja við lög sem þau kunna ekki hálft textann við en þeim líður eins og þau eigi heiminn! Þetta er ein besta tilfinning í heimi, er ótrúlega þakklát fyrir að hafa "flækst" inní þessa vinnu, maður horfir aðeins öðrum augum á lífið8)

Annars komst ég á snoðir um það að litlu gelgjurnar mínar í 5.flokknum hafi vitneskju bloggið mitt! (þrátt fyrir að ég hafi algjörlega þrætt fyrir nokkur skrif á veraldarvefinn! Lygarasvipurinn minn er að vísu ekki uppá marga fiska, en ég var samt að vonast eftir að fá prik fyrir viðleitni:S) En í ljósi aðstæðna þá get ég alveg eins haldið áfram að röbba því inn að það er ansi skrýtin "tilviljun" að MITT lið vinnur alltaf í þeim leikjum sem við tökum okkur fyrir hendur! (hvað segiði stelpur, haldið virkilega að þetta sé tilviljun?? :lol: ) fórum t.d í kýló í morgun, það var ansi hressandi, og að sjálfsögðu vann mitt lið með yfirburðum, enda kellan með nokkur "home runs" og alveg merkilega spræk miðað við að vera komin af léttasta skeiði!! :$ Þær voru samt voða sætar í sér og buðu sig fram í að vera ferðafélagar í sólarlandaferðina mína (þið eruð meira en velkomnar, það verður brilliant að rústa ykkur í strandblaki!! ;)) En ætli þær verði ekki að láta sér nægja félagsskap minn á Partille cup, vinn þær bara í sokkabolta eða einhverju sniðugu:haha:

Nenniggi meir, vona að skvassfélaginn minn láti sjá sig á skvassæfingu á morgun (ansi sárt að láta gleyma sér! :cry: hehe, nei djók Anna mín, tók það ekkert nærri mér! ;)) en við þurfum að rifja upp taktana sem Kim kenndi okkur (Óli Þór, þú þarft að vera ansi duglegur að hlaupa á eftir strætó útí Norge ef þú ætlar að eiga séns í okkur þegar þú kemur heim!!)

Leiter kids... 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 19:17:55 / bjarneybj

appelsínueista o.fl

Talandi  um masókisma, ég er komin í náttfötin og uppí rúm og er svo algjörlega búin á því að ég meika varla að skrifa! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað  þetta er gott! ;) Nú vantar mig samt táslunuddandi kærasta, en þeir eru víst vandfundnir þannig að ég mun halda áfram að bera harm minn í hljóði:^)
Dagurinn byrjaði as usual kl.5:10, byrjaði að þjálfa kl.6 og hitti svo Evu kl.7, við fórum í hálftíma skvass og lyftum svo fætur. Kl.15 fór ég og Anna Rut í fyrsta skvasskennslutímann og það var snilld:haha: Tók líka helling á, og gott ef við lærðum ekki bara þónokkuð á þessum eina tíma:$ (samt allavegna 4 eftir, ætlum að massa þetta almennilega! ;)) eftir skvassið þá ákvað ég að fara að skokka aðeins og var mætt á brettið kl.16:30. Ætlaði fyrst bara að krúttast í hálftíma en lengdi það svo aðeins, þrátt  fyrir gríðarlega þreytu í fótunum. Það sem veitti mér innblástur var lestur Lance Armstrong bókarinnar, hann hélt sko áfram að hjóla þó að annað eistað á honum væri orðið jafnstórt og appelsína! (hann var s.s með krabbamein í eistum en var ekkert að láta tékka á þessu fyrr en það var orðið huge) en hann var alltaf að pína sig. Og mig langar geðveikt að vera jafn mikill nagli!  Frá 40 mínútu þá langaði mig helst að leggjast niður og deyja, hnéið orðið aumt og mjólkursýran ekki að gera gott mót, en ég ákvað að klára klukkutíma. Það þýðir ekkert að vera með neinn aumingjaskap, ef Lanci gat hjólað með appelsínueistu þá á ég alveg að geta drullast í gegnum klukkutíma á færibandi! Ég hafði heldur enga afsökun fyrir að hætta:S er ekki einu sinni með eistu...

Kræst, ég er dead, ætla að fara að huga að svefninum mínum, leiter...


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 21:34:54 / bjarneybj

FERÐAFÉLAGI/AR ÓSKAST!

Sko, ég er farin að huga að næstu utanlandsferð, og þar sem ég er ekki sú þolinmóðasta þá var ég að spá í ferð um páskana:$ Held samt að það sé ekkert spes að fara einn þannig að ég var að spá hvort einhver vildi koma með mér?? Áfangastaður er ekki ákveðinn, en það verður að innihalda sól og hita! Og líka að vera hægt að ærslast eitthvað, ekki djammpleis, er orðin of gömul í það (;)) Þannig að ef e-r vill koma með þá er sá hinn sami velkominn, er líka opin fyrir uppástungum um áfangastað, veit bara að ég VERÐ að komast út!!

Og svo í sumar ætla ég að labba Fimmvörðuhálsinn og Laugaveginn, og alltaf gaman að hafa skemmtilega ferðafélaga, þannig að ég er líka byrjuð að taka við bókunum í þær ferðir;)

farin að lúlla, góða nótt...


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 16:23:52 / bjarneybj

af hverju hata ég macintosh..?

Af því að þó að maður sé búin með uppáhaldsmolann sinn þá hættir maður ekki, nei þá byrjar maður hægt og rólega að saxa á næstbesta og þannig kolla af kolli þar til maður lætur sig bara hafa það að borða verstu molana þó manni þyki þeir ekkert rosa góðir! :S

En ekki lengur, stundum kem ég mér í aðstæður sem mig langar ekkert endilega að vera í! En þegar einn af mínum uppáhaldsnemendum (já Eva, þú mátt taka þetta til þín! ;)) tilkynnti mér að hún ætlaði að hætta að borða nammi í x langann tíma þá gat ég ekki verið minni kvenmaður og ákvað að vera þjáningarsystir í ferlinum, don´t ask me why!! :$ var soldiðhrædd við að ætla að vera í nammibindindi eftir nefaðgerðina, stundum þarf mar nebbla að fá nammi ef maður á geðveikt bágt og þannig, en ég ætla allavegna að vera í nammibindindi til 18.jan og svo bara meta það, sjá hversu bágt ég kem til með að eiga! ;) ansans, mér finnst samt nammi gott, ég hlýt að vera einhvers konar masókisti... :$ en þetta er nú bara 2 nammidagar sem ég missi til að byrja með og þetta heldur mér svo vonandi frá helv... macintoshinu (sem ég hata btw, var ég búin að segja ykkur það?? )

Jæja, nenniggi meir, farin að þjálfa handbolta...


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 21:36:11 / bjarneybj

fyrsti dagurinn árið 2006

Þar sem ég er nottla búddi (hey þó ég sé bara búin að vera búddi í 4 daga þá þýðir það samt ekki að þið eigið ekki að taka mig alvarlega!) en já, við búddarnir trúum á karma (what goes around comes around) en ég veit ekki hvað ég gerði svona gott af mér til að verðskulda jafn frábæra vini og ég á:$ Ég var reyndar algjör haugur í morgun og vaknaði ekki fyrr en kl.10:45:S en þá var ég með sms frá Sigurþóri, sem hafði sent um leið og símatíminn byrjaði kl.10 og spurði hvort mig vantaði hjálp við flutningana. Ég var reyndar með á silent og svaf það af mér en heyrði í honum þegar ég vaknaði og hann bauðst til að koma þegar ég væri búin að pakka niður. Þegar Sigurþór var búinn að taka sundur skrifborðið mitt og henda öllu inn í lyftuna þá voru Dóra og Óli Þór mætt á svæði (Sigurþór var sem sagt ekkert að hjálpa, hann gerði bara eiginlega allt og við hin vorum litlu aðstoðarálfarnir hans!)
Óli Þór tilkynnti mér að Fannar væri með honum og hann ætlaði að kynna okkur. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar, að loksins væri einhver farinn að bera minn hag fyrir brjósti í þessu nunnulíferni BUT NO, Fannar er GRAFTARBÓLA! 8| Grós sko! *bjakk* en það var allt í lagi, gat þá bara einbeitt mér að flutningunum fyrst þetta var ekki sætur gaur sem hann dró með sér. En þar sem við vorum svona mörg þá vorum við skotfljót að þessu, (get ekki þakkað ykkur nógsamlega kids, þetta var ótrúlega fallega gert af ykkur *smooch* ) Er reyndar uppí lómó núna að sækja restina af fötunum, vá hvað ég á mikið af fötum8| Ætla að safna í kassa og gefa í Rauða krossinn, eins og ég geri á ca.6 mánaða fresti, samt er ég alltaf að drukkna í fötum sem ég nota ekki:S En "ðe þrí amígós" eru allavegna búin að vinna sér inn gott karma;)

Það var ansi fyndið í nótt þá kíkti ég til Hulda og Hauks, og Óskar Dagur fékk svona fússball spil í jólagjöf. Ég tilkynnti Óskari Degi og Unnari Steini að ég ætlaði að rústa þeim (þeir eru 5 ára) ég fékk reyndar lánaðann markmann, en hún var alveg utan við sig, kannski ekkert óeðlilegt fyrir markmann, flestir með einhver "rainman-gen" í sér (nottla ekki þú Begga mín, þúrt ansi heilbrigð af markmanni að vera;)) en já, hún fær allavegna svona 2-3 mörk skrifuð á sig! Og litlu gerpin unnu 11-10:whut: eftir æsispennandi keppni þar sem hinum ýmsu brögðum var beitt (nottla ekki af mér, nema bara einu sinni, en þá voru þeir búnir að vera að svindla grimmt!) Þegar ég var svo að fara heim þá þökkuðu Hulda og Gréta (mamma Unnars Steins) mér kærlega fyrir að hafa æst þá svona upp og svo bara fara heim og skilja þær eftir með svæfingarverkefnið:klikk:
Held ég hafi svo leikið sama leikinn í Grindavík áðan, kíkti aðeins í mat til Þórunnar sys, og Sindri og Andri voru í þvílíkum gír þegar ég fór, eftir að ég var búin að vera að hlaupa með þá um á háhesti og skylmast og leyfa þeim a spreyta sig á bóndabeygjunni góðu:lol: Jæja, þetta er bara what it takes til að vera uppáhaldsfrænkan í heiminum;) Enda stóð líka "ofurfrænka" á jólapökkunum mínum:haha:

Jæja, nenniggi meir, er ekki alveg búin að meðtaka að fyrsta árið mitt sem búddi sé runnið upp, en það verður spennandi að sjá karma ársins. Ég verð þá sennilega að hætta að leggja bölvanir á fólk, t.d með því að senda frunsu á bakið á pirrandi fólki o.s.frv, þarf að vera dugleg að safna mér góðu karma..! Bæbbli....


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 15:20:45 / bjarneybj

2005/2006

Ég og pabbi fórum með alla snúðana á skauta í gær. algjör snilld. Þeir eru alveg sætastir (ekki hlutdræg fyrir fimmaur! ;)) svo var e-ð Valsdjamm og planið var nú að kíkja aðeins, langaði nottla að hitta stelpurnar en annars var ástæðan fyrir því að ég ætlaði að fara sú að mér finnst ég vera orðin svo geðveikt sorgleg týpa að ég ætlaði að fara og reyna að breyta ímyndinni! Eva var búin að vera að undirstinga mig með dinner og vídjóglápi og, kemur eflaust mjög á óvart, þá varð það oná:S Ég tilkynnti Evu að ég ætlaði bara að eyða kvöldinu í náttfötum og væri alveg til í vídjógláp, með því skilyrði að ég fengi að kaupa nammi líka:haha: Eva dó næstum því þegar ég mætti í bleiku náttbuxunum á stigatröppunum hjá henni8| En ég vildi líka bara sýna henni og Dóru, sem ákvað að letipúkast með okkur, hvað ég er í alvörunni mikið krútt í bleiku náttfötunum mínum! Ég held nebbla að Eva sé bara að stríða mér þegar hún kallar mig krútt:$ En ekki hér eftir! Ekki eftir að hún sá mig í bleikköflóttu náttfötunum mínum..!
Svo fórum við útí sjoppu, og fundum stærsta og besta nammibar á landinu! Í einhverri sjoppu í Hamraborg, ég hélt ég væri dáin og komin til himna! Eða alveg þar til ég var búin með nammið og var að drepast í maganum:S En þetta var totally þess virði, þó að mig langi ekki í nammi fyrr en einhvern tímann á næsta ári! (ca. á morgun:lol: )

Svaf svo bara út í morgun, vaknaði um 10:30 og ég og Anna Rut skelltum okkur í klukkutímabrennslu, það var sweeeet:haha: ætla að leggja mig í pínu stund núna og svo gera mig ready fyrir kvöldið, sem verður þó mjög rólegt. Ætla að borða með mömmu&pabba, og kíkja svo aðeins á Óskar Daginn  minn, jafnvel kveiki á einu stjörnuljósi (í mesta lagi!) og ætla svo bara frekar snemma í háttinn, nenni ekki einu sinni að reyna að taka þátt í þessu ofmetnasta djammi ársins, vonbrigði í 90% tilfella, og fyrir utan það að það er pain að vera á bíl og skutlast með drukkið fólk hingað og þangað:S Er líka að spá í að nota morgundaginn í að flytja, hvort sem er ekkert annað hægt að gera á þessum leiðinlegasta degi ársins:$ En ef e-r vill koma út að labba/hlaupa, já nú eða hjálpa til við flutninga þá verður síminn opinn frá kl.10 í fyrramálið;)

En ég er búin að vera að reyna að finna svona annál um líf mitt á þessu ári og svei mér þá að það er nú ekki margar blaðsíður:$ En þetta er samt sem áður búið að vera alveg hreint yndislegt ár, ábyggilega besta ár ævi minnar:$ og ég held að það sé bara byrjunin á því sem koma skal:haha: Tíndi samt til svona það helsta...

* fór í 2 vikur til Portúgal (Albufeira) í júní með Eyrúnu. Frábær ferð í alla staði og nottla brilliant að komast í sólina!

* Fór með Heiu vinkonu til Breðdalsvíkur um verslunarmannahelgina þar sem við eyddum helginni uppá fjöllum, ógleymanlegt.

* Fór til Benidorm  í byrjun sept. með mfl.kv í handboltanum hjá Val, vorum í eina viku. Frábær ferð með frábæru fólki, og aftur brilliant að komast í sólina! ;)

* Flutti uppí Lómó, again, en er að fara að flytja þaðan aftur, sennilega bara á fyrsta degi nýs árs! (talandi um jójó!)

* Byrjaði að vinna á sambýli aðra hverja helgi, finnst það æði. Dýrka sambýlismennina mína og hlakka alltaf til að mæta í vinnuna.

* Fór aftur til Portúgal, fór til Porto í þetta skiptið, var í eina viku, en engin sól:S Sem var samt allt í lagi, fór m.a á leik með FC Porto og þetta var allt ljómandi skemmtilegt.

Annars var árið frekar viðburðarlítið, búin að vera að þjálfa í Sporthúsinu, þjálfa "litlu" (nokkrar stærri en ég:S) skvísurnar mínar í 5.flokknum hjá Val, og svo vinna á sambýlinu. Þó að þetta hljómi nú kannski ekki mest spennandi þá var þetta frábært ár. Svo eru pælingar og plön í gangi fyrir næsta ár og ég hlakka mikið til að sjá hvað árið ber í skauti sér:haha:

Hafið það rosa gott í kvöld, gangið hægt um gleðinnar dyr og

GLEÐILEGT NÝTT ÁR! *SMOOCH* ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 32